fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Svæðisskipulag Suðurnesja 2008-2024

Skipulags- og matslýsing

Lögð er fram til kynningar verkefnislýsing vegna endurskoðunar á Svæðisskipulagi Suðurnesja 2008-2024 sbr. 1. mgr. 23. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Frá staðfestingu Svæðisskipulags Suðurnesja 2008-2024 hafa orðið margvíslegar breytingar á mikilvægum forsendum. Því hefur svæðisskipulagsnefndin ákveðiðað endurskoða stefnu svæðisskipulagsins sem tekur til sameiginlegra hagsmuna sveitarfélaga á Suðurnesjum s.s. íbúaþróunar og búsetu, atvinnulífs, auðlinda, innviða, loftslagsmála, náttúruvár og heimsmarkmiða.

Verkefnislýsing er aðgengileg á skrifstofu SSS, Skógarbraut 945, 262 Reykjanesbær, á vefsíðu www.sss.is/svaedisskipulag og á vefsíðum sveitarfélaga á Suðurnesjum og Isavia.

Athugasemdum og ábendingum varðandi lýsinguna skal skila til skrifstofu SSS eða á netfangið sss@sss.is. Athugasemdafrestur er til og með 10.10.2021.

Samvinnunefnd um Svæðisskipulag Suðurnesja.
Áshildur Linnet, formaður

 

Til að fá meiri upplýsingar er hægt að sjá meðfylgjandi skjal hér