fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Styrkir haustið 2021

Atvinnuráðgjafar Heklunnar veita upplýsingar um styrki og styrkjamöguleika sem standa einstaklingum, fyrirtækjum og rannsóknaraðilum til boða. Á næstu mánuðum eru eftirfarandi sjóðir auglýstir:

  • Myndlistasjóður 23. ágúst kl. 16:00
    • Undirbúningsstyrki – Undirbúningsstyrkir eru veittir til undirbúnings og þróunar viðamikilla verkefna sem síðar geta sótt um styrk til framkvæmdar.
    • Sýningarverkefni – Styrkir til sýningarverkefna. Með verkefni er átt við viðburð sem fer fram á afmörkuðu tímabili með skilgreint upphaf og endi.
    • Útgáfustyrki, rannsóknarstyrki og aðra styrki – Útgáfustyrkir, rannsóknarstyrki og aðrir styrkir eru veittir til rannsókna á verkum íslenskra listamanna og til útgáfu rita um íslenska listasögu og verk myndlistarmanna auk annarra opinna verkefna sem ekki falla undir aðra liði.
  • Styrkveitingar ANR. 31. ágúst.
    • Til hvers? Styrkir til verkefna og viðburða á málefnasviðum ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
  • Hljóðritasjóður: 15. september kl. 15:00
    • Fyrir hverja: Tónlistarmenn, jafnt einstaklinga sem hljómsveitir, útgáfufyrirtæki og aðra er koma að hljóðritun tónlistar.
    • Til hvers? Hljóðritasjóður veitir styrki til hljóðritunar nýrrar, frumsamdrar tónlistar sem stuðla á að nýsköpun. Veittir eru styrkir í almenn verkefni og þróunarverkefni.
  • Tækniþróunarsjóður: Markaðsstyrkur. 15. september kl. 15:00
    • Fyrir hverja? Markaðsstyrkur er eingöngu fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki sem verja að lágmarki 10% af veltunni til rannsókna- eða þróunarstarfs samkvæmt síðasta reikningsári.
    • Til hvers? Hægt er að sækja um styrk vegna sérstaks markaðsátaks en einnig uppbyggingu innviða fyrirtækisins sem tengjast sókn á markaði.
  • Listamannalaun. 4. október kl. 15:00
    • Fyrir hverja? Sjálfstætt starfandi hönnuði, myndlistarmenn, rithöfunda, sviðslistafólk, tónlistarflytjendur og tónskáld.
    • Til hvers? Að efla listsköpun í landinu. Alþingi veitir árlega fé af fjárlögum til þess að launa listamenn í samræmi við lög.
  • Framkvæmdasjóður ferðamannastaða – byrjun október
    • Fyrir hverja?  Framkvæmdasjóður ferðamannastaða fjármagnar framkvæmdir á ferðamannastöðum og ferðamannaleiðum í eigu eða umsjón sveitarfélaga og einkaaðila.
    • Til hvers? Annars vegar vegna (Nýrrar) þjónustu/aðstöðu á ferðamannastað / ferðamannaleið. Hins vegar vegna úrbóta vegna náttúruverndar og/eða öryggis á ferðamannastað eða ferðamannaleið.
  • Uppbyggingarsjóður Suðurnesja – auglýst í október
    • Fyrir hverja? Lögráða einstaklingar, félagasamtök, fyrirtæki, stofnanir eða sveitarfélög á Suðurnesjum
    • Til hvers? Tilgangur Uppbyggingarsjóðs er að styrkja annars vegar menningar- og hinsvegar atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefni
  • Tónlistasjóður 1. nóvember kl. 15:00
    • Fyrir hverja? Tónlistarfólk, hljómsveitir, kóra og aðra er koma að tónlistarflutningi.
    • Til hvers? Sjóðurinn skiptist í tvær deildir, tónlistardeild og markaðs- og kynningardeild. Tónlistardeild veitir styrki til almennrar tónlistarstarfsemi, en markaðs- og kynningardeild veitir styrki til kynningar og markaðssetningar á tónlist og tónlistarfólki hér á landi og erlendis.
  • Hönnunarsjóður 9. mars – 2. semtember
    • Almennt og ferðastyrkir

Athygli skal vakin á því að listinn er ekki tæmandi skrá yfir alla styrki sem eru í boði. Ábendingar um fleiri sjóði skal senda á kolfinna@ssnv.is

Mikilvægt er að vanda vel til verka þegar sótt er um styrki. Á vefnum Frumkvöðlar.is eru gefin góð ráð til að hafa í huga varðandi styrkumsóknir. Áttavitinn hefur einnig gefið út leiðarvísi um hvernig maður skal sækja um styrki, nánari upplýsingar hér.

Atvinnuráðgjafar Heklunnar aðstoða umsækjendur við umsóknir og veita ráðgjöf. Hægt er að panta tíma hér.