fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Mikil aðsókn í Hæfnihringi

Aðsóknin í Hæfnihringi – stuðning fyrir konur í fyrirtækjarekstri á landsbyggðinni, hefur farið fram úr björtustu vonum, en nú hafa rúmlega 40 konur skráð sig og munu hefja leik innan skamms. Verkefnið er samstarfsverkefni milli atvinnuþróunarfélaga og landshlutasamtaka og er þetta í annað sinn sem slíkir hæfnihringir eru settir á laggirnar.

Verkefnið er samstarfsverkefni Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi, Vestfjarðarstofu, Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi eystra, Austurbrú, Samtaka sveitarfélaga á suðurlandi og Heklunnar á Suðurnesjum.

Hæfnihringirnir fara fram í gegnum fjarfundarbúnað sem auðveldar konum af öllu landinu til að taka þátt. Fundirnir verða 6 talsins í þessari umferð þar sem tæpt verður á þeim helstu áskorunum sem konurnar eru að glíma við, svo sem markaðssetning á samfélagsmiðlum og tímastjórnun. Í Hæfnihringjunum fá konurnar tækifæri til að tengjast öðrum konum í svipuðum sporum víðs vegar um landið, mynda tengslanet, deila sín á milli og fá ráð hjá öðrum. Auk þess verða leiðbeinendur hringjanna með viðeigandi fræðslu sem miðuð er út frá þeim áskorunum sem hver hópur á sameiginlegt að standa frammi fyrir. Hæfnihringirnir eru fjármagnaðir af samstarfsaðilunum og stendur því konunum til boða endurgjaldslaust.

Ráðgjafar um allt land munu skipta með sér hópunum sem eru blandaðir milli landshluta en þannig er hægt að setja saman hópa með svipaðar áskoranir auk þess sem verkefnið gerir ráðgjöfum kleift að kynnast betur þeim sem sinna ráðgjöf víðs vegar um landið og þannig samræma vinnulag og stuðning.

Fyrsti hópurinn fer af stað í byrjun febrúar en hugsanlega verður boðið upp á fleiri Hæfnihringi í framtíðinni.