Hvað getum við gert?
Sveitarfélögin á Suðurnesjum ásamt Vinnumálastofnun, Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum, Atvinnuþróunarfélaginu Heklunni, Samtökum atvinnurekenda á Reykjanesi og stéttarfélögunum af svæðinu boða til íbúafundar í Stapa fimmtudaginn 17. september kl. 17.00.
Íbúar allra sveitarfélaga á Suðurnesjum eru boðnir velkomnir á fundinn í Stapa en fundinum verður einnig streymt á Facebooksíðu Víkurfrétta og sveitarfélaganna.
Markmiðið með fundinum er að kynna fyrir íbúum svæðisins þær aðgerðir sem eru í gangi vegna þess atvinnuleysis sem nú er uppi en einnig að hvetja íbúa til þess að koma hugmyndum sínum á framfæri. Íbúum mun gefast kostur á að senda inn tillögur og spurningar. Fyrirkomulagið á því verður útskýrt í upphafi fundar.
Fundarstjóri er Róbert Ragnarsson
Frummælendur:
- Hildur Jakobína Gísladóttir, forstöðumaður Vinnumálastofnunar á Suðurnesjum
- Berglind Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum
- Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR
- Guðjón Skúlason, formaður Samtaka atvinnurekenda á Reykjanesi
- Dr. Árelía Eydís Guðmundsdóttir
0 Comments