Hönnunarverðlaun Íslands
Óskað er eftir ábendingum til Hönnunarverðlauna Íslands árið 2018.
Hægt er að benda á eigin verk og verk annarra til miðnættis 14. september.
Markmið með innsendingum er að vekja athygli á framúrskarandi verkum og tryggja að afburða verk fari ekki fram hjá dómnefnd.
Hægt er að benda á verk í tveimur flokkum; Hönnun ársins 2018 og Besta fjárfesting ársins 2018 í hönnun.
Verðlaunahafinn hlýtur peningaverðlaun að upphæð 1.000.000 kr. nánari upplýsingar má finna á verdlaun.honnunarmidstod.is
Skráðu ábendingar hér!
0 Comments