570. fundur SSS 11. apríl 2007
Árið 2007, er fundur haldinn í stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum miðvikudaginn 11. apríl kl. 08.15 á Fitjum.
Mætt eru: Steinþór Jónsson, Óskar Gunnarsson, Oddný Harðardóttir, Jóna Kristín Þorvaldsdóttir, Birgir Örn Ólafsson, Guðjón Guðmundsson framkv.stj. og Jóhanna M. Einarsdóttir fundarritari.
Dagskrá:
1. Kynning á rekstrarúttekt á skíðasvæðum höfuðborgarsvæðisins. (frestað frá síðasta fundi)
Anna Kristinsdóttir og Ragnar Örn Pétursson í stjórn skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins og Skúli Skúlason, ráðgjafi hjá Capacent komu á fundinn og kynntu rekstrarúttektina.
Hjörtur Zakaríasson og Ólafur Örn Ólafsson sátu fundinn undir þessum lið.
2. Drög að menningarsamningi:
a) Skýrsla starfshópsins
b) Drög að samstarfssamningi milli sveitarfélaganna
c) Drög að menningarsamningi við ríkið
d) Aðgerðaráætlun
Garðar Jónsson og Gísli Sverrir Árnason komu á fundinn og kynntu skýrsluna “Stefna í menningarmálum á Suðurnesjum” sem eru tillögur samstarfshóps sveitarfélaga á Suðurnesjum og drög að 2 menningarsamningum annars vegar milli sveitarfélaganna á Suðurnesjum og hins vegar SSS og ríkisins. Formanni og framkvæmdastjóra falið að ræða við menntamálaráðherra um kröfur okkar um fjárhæðir.
3. Bréf dags. 20/3 ´07 frá Umhverfisnefnd Alþingis ásamt frumvarpi til laga um brunavarnir, 663. mál, flutningur verkefna Brunamálastofnunar o.fl. (frestað á síðasta fundi) Lagt fram.
4. Bréf dags. 20/3 ´07 frá Umhverfisnefnd Alþingis ásamt frumvarpi til skipulagslaga, 661. mál, heildarlög og frumvarp til laga um mannvirki, 662. mál, heildarlög (frestað á síðasta fundi) Lagt fram.
5. Sameiginleg mál.
Engið bókuð mál undir þessum lið.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10.25
0 Comments