Erlendum ríkisborgurum fjölgar mest í Reykjanesbæ
Erlendum ríkisborgurum á Suðurnesjum hefur fjölgað úr 1.890 í 5.170 á sama tíma og fjöldi þeirra af heildaríbúafjölda hefur farið úr 8,8 prósent í 19,8 prósent. Þá hefur erlendum ríkisborgurum sem búa á Íslandi fjölgað um 89 prósent frá lokum árs 2011 en í dag eru þeir um 40 þúsund talsins, langflestir pólverjar.
Þetta kemur fram í nýlegum tölum Hagstofu Íslands sem sýna fjölda landsmanna í lok fyrsta ársfjórðungs 2018
Í Reykjanesbæ hefur orðið sprenging á fjölda erlendra ríkisborgara samhliða aukinni þörf á vinnuafli vegna umsvifa í kringum alþjóðaflugvöllinn. Í lok árs 2011 voru 1.220 erlendir ríkisborgarar í sveitarfélaginu og þeir 8,6 prósent íbúa. Í lok mars voru þeir orðnir 3.830 og 21,2 prósent íbúa.
Öll fjölgun á Íslandi á fyrstu mánuðum ársins var vegna aðflutnings útlendinga sem eru í dag 11,2 prósent allra íbúa landsins. Því er hlutfall þeirra í Reykjanesbæ töluvert yfir meðaltali.
Reykjanesbær hefur ráðið fjölmenningarfulltrúa til að flýta fyrir aðlögun og um leið auka lífsgæði erlenda ríkisborgara í bæjarfélaginu og hefur hann það hlutverk að greina aðstæður þessa hóps og vinna að aukinni virkni erlendra íbúa í samfélaginu.
0 Comments