Samþykktir fyrir Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum

1. grein
Sveitarfélögin á Suðurnesjum,  Grindavíkurbær, Reykjanesbær,Sandgerðisbær, Sveitarfélagið Garður og Sveitarfélagið Vogar eiga með sér samband undir nafninu Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum, skammstafað S.S.S.
Heimili og varnarþing þess skal vera það sama og formanns hverju sinni.


2. grein

Tilgangur sambandsins er að vinna að hagsmunamálum sveitarfélaganna og efla og styrkja samstarf þeirra. Í sameiginlegum málum komi það fram fyrir hönd sveitarfélaganna gagnvart ríkisvaldinu og öðrum. Kostnaður við rekstur sambandsins skal greiddur miðað við höfðatölu 1. des. ár hvert.


3. grein

Sambandsfundir skulu haldnir þegar stjórn þykir þurfa, eða ein eða fleiri sveitarstjórn eða 7 eða fleiri sveitarstjórnarmenn krefjast þess skriflega, enda sé þá greint frá hvert fundarefni skuli vera. Aðalfundur skal að jafnaði haldinn í októbermánuði ár hvert nema á kosningaári, þá eigi síðar en 15. september. Til fundar skal boða með dagskrá með minnst einnar viku fyrirvara. Allir kjörnir sveitarstjórnarmenn á svæðinu eiga rétt til setu á fundum sambandsins. Ennfremur eiga bæjarstjórar rétt til fundarsetu með málfrelsi og tillögurétti og sama gildir um framkvæmdastjóra S.S.S.


4. grein

Sambandsfundur er ályktunarbær ef 2/3 hlutar fulltrúa eru mættir, en afl atkvæða ræður á fundi, sjá nánar í fundarsköpum fyrir S.S.S. Ályktanir um fjárhagsmál eru þó ætíð háðar samþykki hverrar sveitarstjórnar. Þó er stjórn S.S.S. heimilt að samþykkja tilfærslu innan samþykktrar fjárhagsáætlunar samstarfsins enda hafi viðkomandi stjórn lagt það til.


5. grein

Stjórn sambandsins, sem annast málefni þess á milli funda, skal skipuð 5 mönnum og 5 til vara, sem tilnefndir eru af sveitarstjórnunum, einn frá hverri, og skulu tilnefningar liggja fyrir á aðalfundi. Stjórnin skiptir með sér verkum.
Samþykktir stjórnar skulu því aðeins ná fram að ganga að þær séu studdar af aðilum sem bera meirihluta kosnaðar við rekstur sambandsins og hafa meirihluta í stjórn þess.


6. grein

Stjórn sambandsins ræður framkvæmdastjóra. Hann sér um daglegan rekstur sambandsins og ræður starfsfólk þess.

7. grein
Sambandið skal annast samræmingu á fjárhags- og framkvæmdaáætlunum sameiginlega rekinna fyrirtækja og stofnana.
Fyrir lok októbermánaðar ár hvert skulu stjórnir sameiginlega rekinna fyrirtækja senda stjórn S.S.S. frumvörp að fjárhags- og framkvæmdaáætlunum sínum fyrir næsta ár.
Fjárhagsnefnd, skipuð öllum bæjarstjórum á svæðinu, skal yfirfara frumvörpin og gera tillögu um afgreiðslu þeirra til stjórnar S.S.S. í síðasta lagi fyrir 15. nóvember. Fyrir 1. desember skal stjórnin síðan afgreiða frumvörpin til sveitarstjórnanna og stjórna stofnananna.
Heimilt er stjórnum sameiginlega rekinna fyrirtækja og stofnana að leita til fjárhagsnefndarinnar um ráðgjöf í sambandi við undirbúning fjárhags- og framkvæmdaáætlana.


8. grein
Sambandið skal annast samræmingu á röðun í launaflokka og framkvæmd starfsmats hjá sveitarfélögunum og sameiginlega reknum fyrirtækjum og stofnunum. Það skal aðstoða við gerð kjarasamninga, eða annast gerð þeirra að hluta eða öllu leyti, eftir því sem sveitarstjórnirnar ákveða hverju sinni.
Stjórn SSS annast launamálin samkvæmt ákvæðum þessarar greinar.
Allir kjarasamningar og aðrar ákvarðanir í launamálum starfsmanna sveitarfélaganna eru ávallt háðir samþykki viðkomandi sveitarstjórnar.
Kjarasamningar og launaákvarðanir varðandi starfsmenn fyrirtækja og stofnana þarfnast samþykkis stjórnar S.S.S.

9. grein
Á aðalfundi skulu kosnir tveir skoðunarmenn reikninga og tveir til vara. Endurskoðaðir reikningar skulu lagðir fyrir aðalfund.

10. grein
Samþykktum þessum verður eingöngu breytt á aðalfundi, enda hljóti tillaga þar um samþykki minnst 3/4 hluta atkvæða. Tillögur til breytinga skulu hafa borist stjórn sambandsins eigi síðar en mánuði fyrir aðalfund.

Samþykktar á aðalfundi Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum
í Sveitarfélaginu Vogum þann 9. september 2006.