Á vorönn verða eftirtalin námskeið í boði.
Stígum skrefið
Kannast þú við að eiga þér hugðarefni sem þú vilt sinna betur eða hafa fengið góðar hugmyndir en ekki náð að hrinda þeim í framkvæmd? Fólki má skipta í tvo hópa; þá sem láta hlutina gerast og þá sem horfa á aðra láta hlutina gerast. Hvorum hópnum vilt þú tilheyra? Skrefin frá hugmynd yfir í framkvæmd geta verið stór og virðast stundum óyfirstíganleg. Á námskeiðinu verður bent á leiðir til þess að auðvelda einstaklingum að stíga skrefið og hrinda hugmyndum sínum og fyrirætlunum í verk; láta verkin tala. Námskeiðið er í þrjú skipti og markmiðið er að í lok þess hafi þátttakendur komið einhverjum af hugðarefnum sínum í framkvæmd.
Leiðbeinandi: Kjartan Már Kjartansson
Tími: 21. og 28. febrúar og 13. mars kl. 19:00 - 22:00
Verð: Í boði Atvinnuþróunarráðs SSS
Stofnun og rekstur smáfyrirtækja
Farið er yfir helstu grunnatriði áður en rekstur hefst og leiðbeint um fyrstu skrefin. Farið í gegnum verkefni þar sem fram kemur flest það sem mætir þeim sem hefja rekstur, s.s. útreikning og skil til skattyfirvalda, bókhald o.fl.
Leiðbeinandi: Anna Birgitta Geirfinnsdóttir
Tími: 11. febrúar og 7. apríl kl. 18:00 - 21:00. Ath. 2 námskeið.
Verð: Í boði Atvinnuþróunarráðs SSS
Sóknarnámskeið
Námskeiðið er 40 kennslustunda námskeið um rekstur fyrirtækja með áherslu á markaðssetningu, stjórnun og fjármál. Markmiðið er að veita þátttakendum hagnýta menntun og stuðning sem hvetur þá til að koma hugmyndum sínum í framkvæmd og nýta þau tækifæri sem eru til staðar. Menntunin fer fram á fræðilegum og faglegum grunni. Á námstímanum vinna þátttakendur að ákveðnu verkefni sem byggir á þeirra eigin viðskiptahugmynd.
Tími: Hefst í febrúar
Leiðbeinandi: Frá Nýsköpunarmiðstöð Íslands
Verð: kr. 25.000, námskeiðið er niðurgreitt af Atvinnuþróunarráði SSS.
Skráning á námskeiðin fer fram hjá Miðstöð Símenntunar í síma 421-7500 eða á heimasíðu
Miðstöðvarinnar.