Atvinnuþróunarráð SSS stendur fyrir námskeiðum á komandi haustmánuðum.
Stofnun og rekstur smáfyrirtækja
Farið verður yfir helstu grunnatriði áður en rekstur hefst og leiðbeint um fyrstu skrefin. Farið í gegnum verkefni þar sem fram kemur flest það sem mætir þeim sem hefja rekstur, s.s. útreikning og skil til skattayfirvalda, bókhald og f.l.
Leiðbeinandi er Anna Birgitta Geirfinnsdóttir, Deloitte.
Tímalengd er 3 klst og er námskeiðið þátttakendum að kostnaðarlausu.
Skráning fer fram hjá Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum http://www.mss.is
Gerð viðskiptaáætlana
Hverjum er námskeiðið ætlað?
Námskeiðið er ætlað þeim sem eru að velta fyrir sér að stofna fyrirtæki og vilja taka fyrsta skrefið í þá átt.
Markmið
Að þátttakendur öðlist þekkingu á tilgangi, innihaldi og gagnsemið viðskiptaáætlana.
Helstu efnisþættir
* Hvað er viðskiptaáætlun
* Hvert er innihald viðskiptaáætlunar
* Hverjum er viðskiptaáætlun ætluð
* Er viðskiptaáætlun eingöngu fyrir ný fyrirtæki
* Er nauðsynlegt að gera viðskiptaáætlun
Kennslufyrirkomulag
Kennslan er í formi fyrirlestra og umræðna. Tímalengd er 4 klst. Námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu.
Leiðbeinandi er Kristján Óskarsson BBA
Skráning fer fram hjá Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum http://www.mss.is