Á lokafundi samráðsvettvangs sveitarfélaga á Suðurnesjum og stjórnvalda í dag skrifaði S.S.S. og Byggðastofnun, f.h. stjórnvalda undir samning um stofnun atvinnuþróunarfélags. Stjórn S.S.S. fagnar þessum samningi og telur að með stofnun atvinnuþróunarfélags sveitarfélaga á Suðurnesjum sé stigið mikið framfaraskref í atvinnuuppbyggingu á Suðurnesjum. Mikið verkefni bíður félagsins á næstu vikum og mánuðum og vonandi mun atvinnuþróunarfélagið styðja við og flýta fyrir atvinnuuppbyggingu á Suðurnesjum. Atvinnuþróunarfélagið mun vinna áfram í góðu samstarfi við iðnaðarráðuneytið er hvatti til stofnun félagsins.
Stjórn Atvinnuþróunarfélagsins verður fyrst um sinn skipuð 7 fulltrúum, þar af 5 frá sveitarfélögunum, einn frá S.A.R og einn frá Kadeco.