Námskeið - Samband íslenskra sveitarfélaga

17.2.2011
 Námskeið fyrir kjörna sveitarstjórnarfulltrúa í félagsmálanefndum og starfsmenn félagsmálanefndum og starfmenn félagsþjónustu sveitarfélaga.

Haldin í mars-apríl 2011 á eftirfarandi stöðum:
Ísafirði, Borgarnesi, Suðurnesjum, Akureyri, Reyðarfirði, Árborg, Vík í Mýrdal, Skagafirði og á höfuðborgarsvæðinu.

Námskeiðslýsing:
Markmið námskeiðsins er að þátttakendur öðlist þekkingu og skilning á hlutverki sínu sem kjörnir fulltrúar og starfsmenn í félagsmálanefnd. Fjallað verður um félagsþjónustu sveitarfélaga og þann ramma sem lög um félagsþjónustu sveitarfélaga setja þeirri starfsemi. Auk þess verður fjallað um þær lagalegu málsmeðferðarreglur sem gilda við meðferð mála í félagsmálanefndum farið yfir nokkur álitamál og úrskurði í tengslum við framkvæmd félagsþjónustunnar. Greint verður frá stöðu mála og lagaumhverfi sem snýr að málefnum fatlaðs fólks sem nýlega fóru yfir til sveitarfélaganna. Lögð verður áhersla á að koma með raunhæf dæmi til að auka skilning á sérstöðu málefna félagsþjónustu sveitarfélaganna og er gert ráð fyrir að þátttakendur taki þátt í umræðum. Nánari upplýsingar um námskeiðin og skráning fram á www.samband.is eða beint á http://www.samband.is/verkefnin/stjornsysla-sveitarfelaga/namskeid/

Markhópur:       Kjörnir sveitarstjórnarfulltrúar í félagsmálanefndum og starfsmenn félagsþjónustu sveitarfélaga.
Kennarar:           Gyða Hjartardóttir, félagsþjónustufulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Ingibjörg Broddadóttir, deildarstjóri í velferðarráðuneytinu.

http://www.althingi.is/lagas/139a/1993037.html
http://www.althingi.is/lagas/138b/1991040.html
http://www.samband.is/verkefnin/felagsthjonusta/flutningur-a-malefnum-fatladra/

Dagskrá: (ath. tímsetningar eru breytilegar eftir landssvæðum og flugi, sbr. upplýsingar aftast.
Áætlaður tími:
60    mín.     Hlutverk kjörins fulltrúa í félagsmálanefndum. Almennur inngangur um réttindi, skyldur og ábyrgð nefndarfulltrúa, s.s. hæfisreglur, trúnaðarreglur og aðgangur að gögnum. Jafnframt verður kynning á nýju starfi félagsþjónustufulltrúa sambandsins (Gyða Hjartardóttir). 
60    mín.     Lög um félagsþjónustu sveitarfélaga. Farið verður yfir lög um félagsþjónustu sveitarfélaga, meðal annars um almennar reglur um meðferð einstakra mála, og fjallað tiltekin ákvæði stjórnsýslulaga (Ingibjörg Broddadóttir).
20    mín. Kaffi.
40    mín.  Úrskurðir Úrskurðanefndar félagsþjónustu og húsnæðismála. Farið verður yfir úrskurði sem hafa fordæmisgefandi gildi og geta þar af leiðandi nýst almennt við úrlausn mála (Ingibjörg Broddadóttir). 
45    mín.  Staðan í málefnum fatlaðs fólks. Farið verður yfir ný lög um málefni fatlaðs fólks og stöðuna í málaflokknum (Gyða Hjartardóttir).
15    mín.  Samantekt og umræða. 

 Staður og staðsetning:                                                                  Dagsetning og tímasetning:                                            
 Ísafjörður  Mánudagurinn 7.mars, kl. 12:00-16:00
 Akureyri/Háskólinn á Akureyri  Föstudaginn 11.mars, kl. 13:00-17:00
 Suðurnes/Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum  Fimmtudagurinn 17. mars, kl. 13:00-17:00
 Borgarnes/Menntaskólinn Borgarfjarðar  Föstudagurinn 18. mars, kl. 13:00-17:00
 Reyðarfjörður/Þekkingarsetrið  Mánudaginn 21. mars, kl. 13:30-17:30
Árborg Föstudagurinn 1. apríl, kl. 13:00-17:00
Vík í Mýrdal Mánudagurinn 11. apríl, kl. 12:30-16:30
Höfuðborgarsvæðið Miðvikudagurinn 13. apríl, kl. 12:00-16:00
Skagafjörður Þriðjudagurinn 19. apríl, kl. 12:00-16:00
Til baka