Menningarsamningur Suðurnesja

20.4.2011
Undirritaður hefur verið nýr menningarsamningur milli ríkisins og sveitarfélaganna á Suðurnesjum. Gunnar Þórarinsson formaður stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum skrifaði undir samninginn fyrir hönd sveitarfélaganna við hátíðlega athöfn í Ráðherrabústaðnum sl. föstudag.

Markmiðið með menningarsamningnum er að efla samstarf á sviði menningarmála á Suðurnesjum auk þess að stuðla að nýsköpun, fjölbreytni og fjölgun atvinnutækifæra á sviði menningar, lista og menningartengdrar ferðaþjónustu. Menningarráð Suðurnesja sem er vettvangur samstarfs sveitarfélaganna á Suðurnesjum, hefur það hlutverk að standa fyrir þróunarstarfi og úthluta fé til verkefna á sviði menningar og menningartengdrar ferðaþjónustu.

Mennta- og menningarmálaráðuneytið leggur til 17,4 m.kr. til samningsins og Iðnaðarráðuneytið 5,7 m.kr. Sveitarfélögin á Suðurnesjum leggja sameiginlega til að lágmarki sem næst 40% af framlögum ráðuneyta eða sem nemur 9,2 m.kr.


 
Til baka