Menningarráð Suðurnesja - Auglýst er eftir styrkumsóknum

15.10.2009
Auglýst er eftir styrkumsóknum til Menningarráðs Suðurnesja vegna menningarstarfs og menningartengdrar ferðaþjónustu á grunni samnings sveitarfélaga á Suðurnesjum og menntamálaráðuneytis og samgönguráðuneytis um menningarmál.

Umsóknarfrestur er til 15. október 2009.

Upplýsingar um styrkumsóknir verða veittar á skrifstofum allra sveitarfélaga á Suðurnesjum og á skrifstofu S.S.S. Iðavöllum 12b.  Einnig er hægt að nálgast upplýsingar á vefsíðum S.S.S. http://menning.sss.is og á vefsíðum sveitarfélaganna og þar er að finna umsóknarform sem hægt er að prenta út. 

Verkefni sem geta komið til greina:
1.    Samstarf milli tveggja eða fleiri aðila, byggðarlaga eða listgreina og uppsetning viðburða á fleiri en einum stað.
2.    Nýsköpun á sviði lista og menningarstarfs.
3.    Verkefni sem miða að fjölgun starfa.
4.    Verkefni sem stuðla að eflingu fagþekkingar á sviði menningar og lista.

Skriflegum umsóknum skila í 7.eintökum á skrifstofu S.S.S Iðavöllum 12b í síðasta lagi kl.16:00 fimmtudaginn 15.október 2009.
Til baka