Menningarráð Suðurnesja stendur fyrir opnum fundi um handverk og hönnun. Allir áhugasamir á Suðurnesjum um handverk, hönnun, listiðnað og minjagripagerð eru boðnir velkomnir á fundinn.
Aðgangur er ókeypis. Boðið verður uppá rjúkandi heitt kaffi.
Gestur fundarins er Sunneva Hafsteinsdóttir, framkvæmdastjóri HANDVERKS OG HÖNNUNAR.
Fyrirlestur Sunnevu mun m.a. fjalla um:
• Skilgreiningar í handverki, hönnun og listiðnaði.
• Verðlagningu á handverki og listiðnaði og gæðamat.
• Minjagripir – hvað er góður minjagripur.
• Auk þess mun Sunneva kynna starfsemi HANDVERKS OG HÖNNUNAR.
Eftir fyrirlesturinn gefst tækifæri til umræðna og fyrirspurna. Vakin er athygli á að í framhaldinu mun Sunneva koma aftur til Suðurnesja og þá verður hún með einkafundi fyrir þá sem vilja leita ráða hjá henni varðandi handverk eða minjagripagerð.
Fundurinn verður haldinn í Bíósal Duushúsa þann 17. febrúar og hefst kl. 17:30.
Frekari upplýsingar veita menningarfulltrúar sveitarfélaganna og verkefnastjóri Menningarráðs Suðurnesja s. 420-3288.
/media/PDF/SSS0611.pdf