Mannréttindi á sveitarstjórnarstigi
Mannréttindi á sveitarstjórnarstigi – þema evrópskrar lýðræðisviku 2011
Evrópuráðið hvetur sveitarfélög í aðildarríkjum sínum til skipuleggja lýðræðisviku (ELDW) í kringum 15. okt. en þann dag árið 1985 var Evrópusáttmáli um sjálfstjórn sveitarfélaga opnaður til undirritunar. Sveitarfélögum í 47 aðildarríkjum ráðsins er boðið að taka þátt í evrópsku áttaki með því að skipuleggja sérstakar aðgerðir frá 10. – 16. okt. nk. undir yfirskriftinni „Mannréttindi? Hver er staðan í þínu nærumhverfi?“
Sveitarstjórnarþing ráðsins vill með þessu móti beina athyglinni að því að mannréttindi eru órjúfanlegur þáttur í staðbundnu lýðræði og virðing fyrir mannréttindum þarf að vera hluti af menningu hvers samfélags. Lýðræði og mannréttindi haldast í hendur. Það er ekkert lýðræði án mannréttinda. Lýðræðisvikunni 2011 er ætlað að auka skilning og meðvitund um að mannréttindi snerta ekki bara verkefni ríkisins heldur líka sveitarfélaga. Það reynir á ýmis félagsleg og borgarleg réttindi hjá sveitarfélögum, t.d. jafnan rétt kynjanna til þjónustu og réttindi þeirra sem standa höllum fæti til þjónustu, t.d. fatlaðra, innflytjenda og fleiri minnihlutahópa. Markmiðið er meira jafnræði og jafnrétti í sveitarfélögum, burt með misrétti, félagslega kúgun og útskúfun.
Lýðræðisvikan býður einnig upp á tækifæri til að vekja athygli á mikilvægi lýðræðislegrar þátttöku íbúa sveitarfélaga og hvetja til samræðu við þá. Aðgerðir geta verið af ýmsu tagi, svo sem opinberar umræður, auglýsingaherferð, sýningar, samkeppni.
Á heimasíðu vikunnar, http://www.coe.int/t/congress/demoweek/default_EN.asp, eru upplýsingar um hvernig hægt sé að skrá sig til leiks, hugmyndir um aðgerðir og hjálpargögn.