Innovit-Gullgæs 2011

19.1.2011
Gríptu gæsina... Fékkstu frábæra hugmynd í sturtu í gær? Hefuru gengið með sömu hugmyndina í maganum í tvö ár? Eða skortir þig kunnáttu til að koma góðri hugmynd í framkvæmd?

Nú er Frumkvöðlakeppni Innovit, Gulleggið 2011, í þann mund að hefjast þar sem markmiðið er að hjálpa hugmyndum að verða að veruleika.

Allir þeir sem luma á viðskiptahugmynd eru því hvattir til þess að senda hana inn í keppnina og fá í kjölfarið aðstoð við að breyta hugmyndunum í fullbúnar viðskiptaáætlanir.

Keppnin er auk þess kjörinn vettvangur til að hitta og komast í samband við aðra frumkvöðla. Verðlaun eru veitt fyrir tíu bestu viðskiptaáætlanirnar og nema heildarverðlaun keppninar rúmum 3.000.000 íslenskra króna.

Allir sem hafa viðskiptahugmynd geta farið inn á www.gulleggid.is og sent inn sína hugmynd fyrir miðnætti 20. janúar 2011. Fullur trúnaður ríkir vegna þeirra hugmynda sem sendar eru inn í keppnina. ....meðan hún gefst .

/media/PDF/Innovit_Gullgaes2011_Baeklingur_vefutgafa_1.pdf
Til baka