Átaksverkefni
Lögð er áhersla á stutt og hnitmiðuð verkefni sem geta skapað mikil verðmæti á stuttum tíma. Verkefni sem eru til 12-18 mánaða munu að öllu jöfnu njóta forgangs Sjóðurinn er opinn fyrir öllum hugmyndum sem auka verðmæti sjávarfangs. AVS sjóðurinn er tilbúinn til að greiða allt að 50% af kostnaði átaksverkefna, en hámarksstyrkir eru 6-8 m.kr.
Framhaldsverkefni
Með stuðningi AVS sjóðsins eru allmörg 2-3 ára verkefni í gangi og mun sjóðurinn styðja þau áfram ef framvinda rannsókna er í samræmi við fyrirheit og kröfur sjóðsins.
Nýtt hjá AVS
Atvinnuþróun og nýsköpun í sjávarbyggð Þetta er nýr flokkur umsókna þar sem lögð er áhersla á verkefni sem skapað geta ný störf og verðmæti í sjávarbyggðum landsins. Um er að ræða stutt verkefni sem tengjast t.d. ferðaþjónustu, framboði á sjávarfangi, nýjum vörum eða þjónustu. Hámarkstími verkefna er 12 mánuðir og skal skila afrakstursskýrslu til sjóðsins við lok verkefnisins. Hámarksupphæð styrkja er 3 m.kr. og er miðað við að hlutfall styrks af heildarkostnaði verkefnisins verði ekki hærra en 50%.
Skilafrestur allra umsókna er til þriðjudagsins 1. febrúar 2011 fyrir kl. 17:00
Nánari upplýsingar og leiðbeiningar fyrir umsækjendur ásamt eyðublaði er að finna á www.avs.is
AVS rannsóknasjóður í sjávarútvegi starfar á vegum sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins og veitir styrki til rannsókna- og þróunarverkefna sem auka verðmæti sjávarfangs.
AVS rannsóknarsjóður í sjávarútvegi - Pósthólf 1188 - 121 Reykjavík - Sími 422-5102. www.avs.is
/media/PDF/Auglysing_avs_15x15_2011.pdf