Ársreikningur Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum 2011

16.3.2012
Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum er stofnun í eigu sveitarfélaganna á Suðurnesjum og bera þau ábyrgð á
skuldbindingum þess. Eignarhaldið er breytilegt og fer eftir íbúafjölda í sveitarfélögum á hverjum tíma.

Hlutverk sambandsins er í meginatriðum að hafa umsjón með og annast ýmiskonar verkefni sem sveitarfélögin
á Suðurnesjum standa sameiginlega að. Starfsemi sambandsins flokkast því undir að vera á vettvangi
sveitarfélaga.

Á árinu 2003 seldi sambandið skuldabréf í opnu skuldabréfaútboði fyrir 500 millj. kr. Lánið er verðtryggt,
greiðist á tíu árum og ber 5% fasta vexti. Láninu er ætlað að fjármagna framkvæmdir við Fjölbrautaskóla
Suðurnesja sem sveitarfélögin þar standa að. Samkvæmt samkomulagi þeirra við ríkissjóð mun hann greiða
hlutdeild í framkvæmdum og annast sambandið fjármögnun þeirra fyrir hönd sveitarfélaganna. Sveitarfélögin
bera hlutfallslega ábyrgð á greiðslu lánsins og sambandið sér um að innheimta hjá hverju þeirrra hlutdeild í
afborgun og vöxtum af láninu á hverjum gjalddaga og standa skil á þeim til skuldareigenda. Í lok ársins 2011
námu eftirstöðvar lánsins 142,1 millj. kr. og eftirstöðvar þess voru í fullum skilum.

Tekjuafgangur sambandsins á árinu 2011 nam um 2,9 milljónum kr. og eigið fé í lok ársins 2011 nam um 32,1
milljón kr. samkvæmt ársreikningi. Starfsemi sambandsins var í megninatriðum í samræmi við áætlanir og
greiðslur sveitarfélaganna til sambandsins vegna fjármögnunarverkefna þess voru í skilum.

Berglind Kristinsdóttir er framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum og veitir frekari upplýsingar
um starfsemi þess og stöðu.

/media/PDF/Arsreikningur_SSS_2011.pdf
Til baka