Ályktanir Aðalfundar Sambands sveitarfélaga Suðurnesja

8.10.2011

Ályktun um atvinnumál

 

Aðalfundur Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum haldinn í Stapa í Reykjanesbæ,  7.- 8. október 2011 telur atvinnuuppbyggingu vera mikilvægasta verkefni Suðurnesjamanna. Atvinnuleysi á landinu er mest á Suðurnesjum og því mikilvægt að allir aðilar leggist á eitt í uppbyggingu atvinnulífs á svæðinu. Það þarf að vinna markvisst að framgangi þeirra verkefna sem eru við það að komast á framkvæmdastig s.s. í Helguvík og á Ásbrú. Ekki er síður mikilvægt að huga að þeim þeim fjölmörgu vaxtabroddum atvinnulífsins sem víða leynast s.s. í tengslum við ferðaþjónustu og alþjóðlegan flugvöll. Þá má ekki gleyma því að sjávarútvegur er ein af undirstöðum atvinnulífs á Suðurnesjum og tryggja þarf rekstraröryggi hans til framtíðar.

 

Aðalfundurinn skorar á Alþingi og ríkisstjórnina að ganga enn ákveðnar til verks þegar kemur að framgangi þeirra verkefna sem snúa að Suðurnesjunum. Fundurinn tekur undir þau sjónarmið að flytja eigi verkefni á vegum ríksins frá höfuðborgarsvæðinu til landsbyggðarinnar og í því sambandi er rétt að benda á að Landhelgisgæslan á hvergi betur heima en á Suðurnesjum.

 

Öll uppbygging atvinnulífs á Suðurnesjum byggir á öruggum flutningi raforku til og frá svæðinu. Því þurfa nýjar háspennulínur að komast í gagnið hið fyrsta. Mikilvægt er að allir aðilar bæði ríkisvald, stofnanir og sveitarfélög leggist á eitt til að tryggja eðlilegan og nauðsynlegan flutning á raforku til og frá Suðurnesjum.

 

 

Ályktun um heilbrigðismál

 

Aðalfundur Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum haldinn í Stapa í Reykjanesbæ, 7.- 8. október 2011 varar við þeim niðurskurði til heilbrigðisþjónustu og sjúkraflutninga á Suðurnesjum sem boðaður er í framlögðu fjárlagafrumvarpi.

 

Aðalfundurinn lýsir áhyggjum yfir þeim alvarlegu afleiðingum sem niðurskurðurinn getur haft á þjónustu Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja sem og rekstur hjúkrunarheimila á svæðinu. Hið mikla atvinnuleysi á Suðurnesjum kallar á aukna heilbrigðisþjónustu og því ætti frekar að bæta í framlögin en að draga úr þeim.

 

Minnkuð fjárframlög til sjúkraflutninga á Suðurnesjum ógna öryggi íbúa svæðisins. Það er í mótsögn við þá stefnu stjórnvalda að neyða Suðurnesjamenn til þess að nýta heilbrigðisþjónustu í Reykjavík í auknum mæli um leið og dregið er úr framlögum til sjúkraflutninga.

 

Aðalfundurinn skorar því á stjórnvöld að draga boðaðar niðurskurðartillögur til baka og tryggja sæmandi heilbrigðisþjónustu við Suðurnesjamenn.

 

Ályktun um Fisktækniskóla Íslands

Ályktun aðalfundar SSS 7.-8. október 2012 haldinn í Stapa í Reykjanesbæ um Fisktækniskóla Íslands.

Aðalfundur SSS hvetur Alþingi og menntamálaráðherra til að veita Fisktækniskóla Íslands viðeigandi stöðu sem sérskóli á framhaldsskólastigi, enda er skólinn stofnaður á grundvelli laga um framhaldsskóla og framhaldsfræðslu. Jafnramt að framlög til skólans verði eins og til annarra sambærilegra skóla á framhaldsskólastigi.

Fisktækniskólinn hefur nýlega gert samkomulag við mennta- og menningarmálaráðuneytið vegna rekstur skólans til loka skólaársins 2012-2013. Sá samningur er byggður á tímabundnum átaksforsendum og fjármagnaður af lið í fjárlögum vegna aðstæðna á vinnumarkaði. Aðalfundur SSS fullyrðir að nám í sjávarútvegi á Suðurnesjum sé til frambúðar og ætti að njóta virðingar sem slíkt.

 

Til baka