Evrópu samvinna.
Kynning á tækifærum og styrkjum í Evrópusamstarfi verður haldi í Virkjun á Vallarheiði, 24.mars kl.16:00-18:00. Fulltrúar evrópskra samstarfsáætlana og þjónustuskrifstofa standa fyrir kynningu á styrkja- og samstarfsmöguleikum á vegum evrópskra áætlana. Kjörið tækifæri fyrir einstaklinga, skóla, fyrirtæki, stofnanir og samtök að kynna sér möguleika til samstarfs á flestum sviðum menntunar, menningar og atvinnulífs.
Eftirfarandi áætlanir verða kynntar:
* Menntaáætlun ESB
* 7.rannsóknaráætlun ESB
* Evrópa unga fólksins
* Menningaráætlun ESB
* EURES - Evrópsk vinnumiðlun
* Samkeppnis- og nýsköpunaráætlun ESB-CIP
* Norðurslóðaáætlun
* Euroguidance
* eTwinning - rafrænt skólasamstarf
* PROGRESS - jafnrétti og vinnumál
* Daphne III - gegn ofbeldi á konum og börnum
* Almannavaraáætlun
* COST
* NORA