Í dag urðu tímamót í samgöngumálum Reyknesinga þegar skrifað var undir samning milli Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum og Vegagerðar ríkisins um yfirtöku SSS á einkaleyfi til almenningssamgangna á Reykjanesi.
Samningurinn er í takt við þá stefnu Samgönguráðuneytisins að færa almenningssamgöngur í hendur sveitarfélaga á landinu.
Við sama tækifæri var undirritaður samningur SSS við Kynnisferðir um framlengingu á sérleyfi fyrirtækisins til aksturs á Reykjanesi og til Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar.
Samningurinn við Vegagerðina felur í sér að SSS yfirtekur rekstur og/eða semur við aðila um sérleyfisakstur á svæðinu, með akstri almenningssamgangna milli byggðarlaga innan og utan svæðis, flugrútuna, skólaakstur og akstur með fatlaða. Þetta hefur í för með sér mikla möguleika sveitarfélaganna á samnýtingu samgangna sem frekar koma í ljós á næstu mánuðum. Það felst m.a. í nýtingu skólaaksturs samhliða almennri áætlun og nýtingu á flugrútunni" til fjölgunar ferða í áætlun frá Reykjanesi til höfuðborgarsvæðisins.
SSS hefur ákveðið að framlengja samningi um sérleyfið við Kynnisferðir til eins árs með framlengingarmöguleika um annað ár, en Kynnisferðir eru í nánu samstarfi við SBK um framkvæmd samningsins.
Þau góðu tengsl sem skapast hafa við samstarfsfyrirtækin, Kynnisferðir og SBK haf leitt til þess að með nýskipan þessara mála verða íbúar Reykjaness strax varir við miklar og jákvæðar breytingar með fjölgun ferða og lækkun fargjalda á áætlanaleið Reykjanes Express frá byggðarkjörnunum á Reykjanesi til höfuðborgarsvæðisins.
Frá og með 1. janúar 2009 fjölgar ferðum frá Reykjanesi til höfuðborgarinnar um 28 á viku, þar af 8 um helgar. Í boði verða afsláttakjör sem koma mjög til móts við þá sem mest nota þjónustu Reykjanes Express og má þar nefna fargjald niður í 300 krónur fyrir einstaka ferð. Reykjanes Express verður eins og áður með tengingar frá Sandgerði, Garði, Grindavík og Vogum. Upphafsstaður og helstu viðkomustaðir eru sem áður:
SBK, Grænás, Vallarheiði, mislæg gatnamót v/Tjarnahverfi, Grindavíkurvegur og Vogaafleggjari, Fjörukráin í Hafnarfirði, Aktu-taktu í Garðabæ, BSÍ og í
morgunferðum: HR, Kennaraskólinn, MR og HÍ.
Nánari upplýsingar um afsláttarkjör og áætlun má finna á www.sbk.is og www.bsi.is og á næstu vikum verður unnið að upplýsingavef Reykjanes Express þar sem allar upplýsingar verða aðgengilegar.
Frá því í janúar á þessu ári hefur verið unnið að því að SSS tak yfir einkaleyfi til almenningssamgangna á Reykjanesi. Það er í takt við þá stefnu Samgönguráðuneytisins að færa almenningssamgöngur í hendur sveitarfélaga á landinu.
