Menningarráð Suðurnesja

22.12.2008

Menningarráð Suðurnesja

Fréttatilkynning 19. desember 2008

Styrkjum úthlutað til 49 menningarverkefna

- Samkvæmt samningi sveitarfélaga á Suðurnesjum við menntamálaráðuneyti

og samgönguráðuneyti.

Menningarráð Suðurnesja úthlutaði í dag styrkjum til 49 menningarverkefna á Suðurnesjum, samtals að upphæð 23 milljónir króna. Hæstu styrkir námu 1,0 milljón króna en þeir lægstu 100 þúsund krónum. Alls bárust menningarráðinu 68 styrkumsóknir í þetta skipti og er það talsverð fjölgun frá því að síðast var úthlutað.

Sveitarfélögin á Suðurnesjum undirrituðu 3. maí 2007 samning við menntamála-ráðherra og samgönguráðherra um samstarf ríkis og sveitarfélaga á Suðurnesjum um menningarmál. Tilgangur samningsins er að efla menningarstarf á Suðurnesjum og beina stuðningi ríkis og sveitarfélaga á Suðurnesjum við slíkt starf í einn farveg.

Þetta er önnur úthlutun Menningarráðs Suðurnesja en það er skipað fulltrúum allra sveitarfélaganna fimm.

Af umsóknum og úthlutunum má ráða að menningarstarf á Suðurnesjum er blómlegt og víða að finna kraftmikla nýsköpun, hvort heldur er á sviði lista eða menningartengdrar ferðaþjónustu. Samstarfsverkefnum fer fjölgandi og sérstaka athygli vekja að þessu sinni mörg og metnaðarfull verkefni sem snúa að barna- og ungmennastarfi.

Úthlutunin fór fram við hátíðlega athöfn í Flösinni í Byggðasafninu á Garðskaga að viðstöddum styrkþegum og fjölda annarra gesta.

Eftirfarandi verkefni hljóta styrki:

1.000.000 Heimskautin heilla.Sýning um líf og störf franska fræðimannsins dr. Charcot sem fórst með skipi sínu Pourquoi-Pas? árið 1936. Fræðasetrið í Sandgerði og fleiri.


1.000.000 Völlurinn, safnsýning. 
Sýning í Duushúsum um íslenska starfsmenn varnarliðsins. Frásagnir, myndir og munir. Byggðasafn Reykjanesbæjar.

1.000.000 Suðsuðvestur: Átta myndlistarsýningar.Settar verða upp átta sýningar á árinu 2009 en staðurinn er hugsaður sem vettvangur fyrir myndlistarfólk. Suðsuðvestur sýningarrými.

1.000.000 Reykjanesbrautin – minnsta hraðbraut í heimi?    Heimildamynd um Reykjanesbrautina. Myndin hefur verið í framleiðslu frá árinu 2004 og verður um einnar klst. löng. Kristlaug María Sigurðardóttir.


1.000.000 Þrjár listsýningar í Duushúsum árið 2009. 
Sýningar listamannanna Eyjólfs Einarssonar, Huldu Vilhjálmsdóttur og Olgu Bergmann. Listasafn Reykjanesbæjar.


1.000.000 Uppsetning á barna- og unglingasöngleik. 
Uppsetning á söngleik í janúar þar sem fjöldi barna, unglinga og fullorðinna sjá um leik, söng og dans. Leikfélag Keflavíkur.


1.000.000 Horn á höfði. 
Fjölskyldu- og barnaleikhús um vini sem þurfa að leysa þrautir til að frelsa bæinn sinn undan þúsund ára böli. GRAL – Grindvíska atvinnuleikhúsið.


800.000 Safnahelgi á Suðurnesjum    
Sameiginleg kynning og dagskrá á söfnum, setrum og sýningum á Suðurnesjum eina eða tvær helgar í febrúar. Fimm sveitarfélög á Suðurnesjum.


700.000 Uppfinningin    
Þríþætt verkefni; uppsetning á frumsömdu leikverki, útgáfa bókar og gerð kvikmyndar. Christine Carr og Kristlaug María Sigurðardóttir.

600.000 List án landamæra á Suðurnesjum    Árleg listahátíð með þátttöku fatlaðra og ófatlaðra listamanna. Suðurnes eru nú í fyrsta sinn með í verkefninu. Reykjanesbær, Sveitarfélagið Garður, Sandgerðisbær, Sveitarfélagið Vogar og fleiri.

600.000 Sumarnámskeiðið KVIK og LEIK.   Sumarnámskeið fyrir 9-16 ára börn þar sem þátttakendur fá að kynnast ýmsum þáttum kvikmyndagerðar. Menningarverkefnið Hlaðan.


600.000 Námskeið fyrir börn.  
8-9 vikna námskeið fyrir 7-14 ára krakka þar sem unnið er með leiki, leikræna tjáningu og söng. Gargandi snilld.


600.000 Menningarsetrið að Útskálum. Tvö verkefni.  
Á vit fortíðar; viðtalsþættir með íbúum prestsetra sem fæddir eru um 1920 og margmiðlunarverkefnið Sagan sögð þar sem saga prestsetra á Íslandi er sögð.


500.000 Ný íslensk tónlist fyrir karlakór.
Ung tónskáld verða ráðin til þess að semja nýja íslenska tónlist fyrir karlakór, allt að átta lög. Karlakór Keflavíkur.


500.000 Listaverkið Hvirfill.
Listaverkið Hvirfill hefur verið sett upp við Hafnartorg í Sandgerði til þess að minnast 100 ára sögu vélbátaútgerðar. Sandgerðirbær.


500.000 Vindhátíð. 
Samvinna 5., 6. og 7. bekkja tveggja grunnskóla um tilraunir, listsköpun og sýningu fyrir almenning. Stóru-Vogaskóli og Grunnskólinn í Sandgerði.


500.000 Söguskilti í Reykjanesbæ. 
Merking sögulegra staða og bygginga með útiskiltum. Tenging við gönguleiðir, útivist og fræðslustarf. Byggðasafn Reykjanesbæjar.


500.000 Litlar jólastjörnur. 
Uppsetning á söngleiknum „Kraftaverk á Betlehemstræti“ sem er fyrir börn á grunnskólaaldri. Æskulýðsfélag Keflavíkurkirkju.


500.000 Þjóðleiðabæklingur um fornar þjóðleiðir. 
Útgáfa fimm bæklinga á ári um fornar þjóðleiðir að verstöðvum á Reykjanesi og milli þeirra. Ferðamálasamtök Suðurnesja.


500.000 Grallarasögur. Bækur og vefur.
Barnabækur og tengd heimasíða sem nýtist heimilum og skólum til fræðslu og þjálfunar. Selma Hrönn Maríudóttir og Tónaflóð.


500.000 Norðurljósaturnar á Reykjanesi.
Verkið Norðurljósaturnar reist úr fimm gljáandi rörum sem hægt verður að horfa í gegnum. Guðmundur R. Lúðvíksson.


500.000 Áramót og þrettándi. Sögur og söngvar.
Þjóðlagahljómsveit skipuð tónlistarmönnum, söngvurum og leikurum flytur efni tengt áramótum og þjóðlagaarfi. Bylgja Dís Gunnarsdóttir.


500.000 Fornleifarannsókn á landnámsminjum.
Fornleifarannsókn á landnámsskála við Kirkjuvogskirkju í Höfnum sem fannst árið 2002. Byggðasafn Reykjanesbæjar og Fornleifastofan.


500.000 Varðveisla gamalla ljósmynda.
Byggðasafnið á Garðskaga á um 2.000 gamlar ljósmyndir sem það ætlar að skrásetja og varðveita í rafrænu formi.


500.000 Krían.
Heimildakvikmynd um Kríuna og ferðalag hennar frá Sandgerði til Suðurskautslandsins. KVIK kvikmyndagerð.


500.000 Kammerkórinn Orfeus.
Uppbygging á starfi kórsins en sérstaða hans er að í honum eru aðeins lærðir söngvarar eða söngnemar. Kammerkórinn Orfeus.


400.000 Listahátíð barna í Duushúsum. 
Listahátíð barna í maí með þátttöku leikskólanna. Allir salir Duushúsa undirlagðir barnamenningu. Listasafn Reykjanesbæjar og 10 leikskólar.


400.000 Listasmiðjan, kynning á menningarhópum. 
Kynning á frístundatilboðum í menningargeiranum sem hægt er að stunda í Reykjanesbæ. Listasmiðjan og Reykjanesbær.


350.000 Kynning á bókmenntaarfinum.
Samstarf fimm almenningsbókasafna og Miðstöðvar símenntunar um fornsögukvöld og bókmenntakynningu. Bókasafn Reykjanesbæjar.


300.000 Menningardagskrá í Duushúsum. 
Fjórir viðburðir: Jólaleikrit fyrir börn, íslenskir siðir fyrir nýbúa, sjómannadagur og tónleikar fyrir eldri borgara. Reykjanesbær og Duushús.


300.000 Myndasöfnun í Sveitarfélaginu Vogum.
Söfnun gamalla mynda úr sveitarfélaginu. Skráning í gagnagrunn, kynning og samstarf við eldri borgara. Sesselja G. Guðmundsdóttir.


300.000 Tónleikaröð í Grindavíkurkirkju.
Röð mánaðarlegra tónleika frá janúar til maí 2009. Byggja að mestu á nýju orgeli kirkjunnar. Grindavíkurkirkja.


300.000 Fræðsluskilti á Kálfatjarnarvelli.
Seinni áfangi verkefnis sem felst í uppsetningu 10 fræðslu- og örnefnaskilta á golfvellinum. Golfklúbbur Vatnsleysustrandar.


300.000 Sögustund suður með sjó.
Tónleikaröð í Duushúsum með 17 þekktum dægurlagahöfundum. Níu tónleikar alls. Einar Bárðarson og Concert.


300.000 Skessan í hellinum.
Gerð fræðsluefnis fyrir börn og skóla og útgáfa kynningarefnis um Skessuna í hellinum. Reykjanesbær.


300.000 Tónsmíðar Bjarna J. Gíslasonar. 
Flokkun og skráning á verkum Bjarna og þau gerð aðgengileg fyrir komandi kynslóðir. Kjartan Már Kjartansson.


300.000 Gospel sumarbúðir fyrir börn.
Gospelbúðir að Reykjum aðra viku í júní fyrir börn og unglinga. Sameiginlegt mót með Akureyringum. Hjálpræðisherinn.


250.000 Þjóðahátíðin „Einn fyrir alla – allir fyrir einn“.
Þjóðahátíð sem haldin var í Garðinum 22. nóvember með fjölbreyttri dagskrá. Um 15% íbúanna er af erlendum uppruna. Sveitarfélagið Garður.


200.000 Minjar frá Keflavíkurflugvelli. 
Viðgerð og varðveisla herbíla sem m.a. eiga að nýtast fyrir komandi Flug- og sögusetur Reykjaness ehf. Tómas J. Knútsson.


200.000 Tónleikarnir „Þú lýgur því“.
Tónleikar í Andrews leikhúsi og Fíladelfíu í Reykjavík með poppgoðum Suðurnesja. Karlakór Keflavíkur.


200.000 Þrívaldi - borðspil.
Þróun og hönnun á borðspili eða leik um gömlu goðin og heimsmynd þeirra, með nýrri sýn þó. Reynir Katrínarson, Ari Svavarsson og Ágústa Malmqist.


200.000 Orð – hljóð – hreyfing - mynd.
Tjáning orða á ýmsan hátt. M.a. leturgerð, upplestur, söngur og dans í samstarfi við aðra listamenn. Reynir Katrínarson.


200.000 Listamaður í heimabyggð.
Skráning á verkum Erlings Jónssonar sem hefur unnið að list sinni á Suðurnesjum í yfir 50 ár. Listasafn Reykjanesbæjar.


200.000 Saga Knattspyrnufélagsins Reynis.
Fyrsti hluti að ritun á sögu Reynis. Ráðinn sagnfræðingur til að afla gagna og skrá þau. Knattspyrnufélagið Reynir.


200.000 Höfnin, lífæð í byggð.
Ljósmyndasýning um lífið og starfið í höfninni í tilefni af 100 ára sögu vélbátaútgerðar frá Sandgerði. Reynir Sveinsson.


200.000 Árabátaútgerð á Suðurnesjum.
Söfnun og skráning heimilda um árabátaútveg frá Suðurnesjum 1755-1845. Haukur Aðalsteinsson.


100.000 Smásagnagerð.
Námskeið þar sem þátttakendur læra að búa til smásögur. Samstarfsverkefni með bókasöfnunum. Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum.


100.000 Myndlistarnámskeið fyrir börn. 
Myndlistarnámskeið fyrir börn á aldrinum 4 til 12 ára. Eiga að opna huga barnanna fyrir umhverfi og listum. Ný Vídd, listasmiðja.

Til baka