Fréttatilkynning

17.12.2008

Menningarráð Suðurnesja

Fréttatilkynning 16. desember 2008

23 milljónum úthlutað

til menningarverkefna á Suðurnesjum

Menningarráð Suðurnesja úthlutar föstudaginn 19. desember, 23 milljónum króna til menningarstarfs á Suðurnesjum. Þetta er önnur úthlutun á styrkjum samkvæmt samstarfssamningi menntamálaráðu-neytis, iðnaðarráðuneytis og sveitarfélaga á Suðurnesjum um menningarmál.

Úthlutunin fer fram við hátíðlega athöfn í Flösinni í Byggðasafninu á Garðskaga kl. 17.00. Ávarp flytur meðal annarra formaður menningarráðsins og fulltrúi menntamálaráðuneytisins. Á dagskrá verða einnig tónlistaratriði.

Við auglýsingu eftir styrkumsóknum að þessu sinni hvatti menningarráðið meðal annars til verkefna er leiddu til nýsköpunar á sviði lista- og menningarstarfs, auk verkefna sem miðuðu að aukinni fjölgun starfa, eflingu fagþekkingar á sviði menningar og lista og verkefna er miðuðu að skapandi starfi fyrir börn og ungmenni.

Einnig var lögð áhersla á verkefni sem ná yfir fleiri en eitt sveitarfélag og koma menningarstarfi á öllu svæðinu til góða.



Viðbrögð við auglýsingu Menningarráðs Suðurnesja voru afar góð og er ljóst af þeim umsóknum sem bárust að mikil gróska og nýsköpun er í menningarstarfi og menningartengdri ferðaþjónustu á svæðinu. Samstarfsverkefnum fjölgar og er það sérstakt fagnaðarefni.


Samstarf ríkis og sveitarfélaga á Suðurnesjum

Hinn 3. maí 2007 undirrituðu öll sveitarfélögin á Suðurnesjum samning um samstarf ríkis og sveitarfélaga á Suðurnesjum um menningarmál við menntamálaráðherra og samgönguráðherra. Tilgangur samningsins er að efla menningarstarf á Suðurnesjum og beina stuðningi ríkis og sveitarfélaga á Suðurnesjum við slíkt starf í einn farveg.

Menningarráð Suðurnesja

Menningarráð Suðurnesja er skipað fimm fulltrúum tilnefndum af sveitarstjórnum á Suðurnesjum. Menningarráðið úthlutar fjármagni til menningarverkefna á Suðurnesjum samkvæmt ofangreindum samningi og hefur eftirlit með framkvæmd hans.

Frekari upplýsingar veitir skrifstofa SSS,

Sími: 420 3288



 

sss@sss.is
Til baka