Atvinnumál kvenna aukin þjónusta
Þann 1. júní tók til starfa hjá Vinnumálastofnun Ásdís Guðmundsdóttir, félagsfræðingur og MS í stjórnun sem ráðgjafi og sérfræðingur í atvinnumálum kvenna. Verkefni hennar verður að sjá um Styrki til atvinnumála kvenna og þjónustu við þær konur sem hafa áhuga á að hasla sér völl sem sjálfstæðir atvinnurekendur.
Félags- og tryggingamálaráðherra setti aukið fjármagn til atvinnmála kvenna á síðastliðnu ári og verða til úthlutunar úr sjóðnum 50. milljónir seinni hluta þessa árs. Næsta úthlutun um Styrki til atvinnumála kvenna verður auglýst í lok ágúst og verður þá hægt að nálgast umsóknareyðublöð ásamt frekari upplýsingum á heimasíðu Vinnumálastofnunar.
Fyrirhugað er að hafa kynningarfundi víðsvegar um landið þar sem styrkmöguleikar og aukin þjónusta er kynnt og verða þeir fundir auglýstir sérstaklega þegar þar að kemur.
Ráðgjafinn verður konum til aðstoðar við hvað eina er lítur að umsóknum en sérstök ráðgjafanefnd metur umsóknir og úthlutar úr sjóðnum.
Ráðgjöf til kvenna sem nýlega hafa hafið rekstur verður aukin umtalsvert og fyrirhugað er að bjóða upp á fjölbreytta þjónustu með bættri upplýsingagjöf og fræðslu. Áætlað er að setja upp vefsetur þar sem konur geta haft greiðan aðgang að ráðgjöf og upplýsingum um styrkveitingarnar og þar sem tengslanet nýliða í hópi athafnakvenna verður vistað. Þar verður einnig hægt að finna upplýsingar um frekari styrk- og lánamöguleika í atvinnurekstri.
Áhersla verður lögð á persónulega ráðgjöf til kvenna sem hafa nýjar viðskiptahugmyndir og eftirfylgni við þær konur sem þegar hafa fengið styrk.
Nýráðinn ráðgjafi er staðsettur á skrifstofu Vinnumálastofnunar á Sauðárkróki að Faxatorgi 1 en þjónustan er fyrir konur um allt land.
Sími ráðgjafans er 582-4914 og netfangið er asdis.gudmundsdottir@vmst.is og eru áhugasamar konur hvattar til að hafa samband.