Mótvægisaðgerðir ríkisstjórnarinnar
2008 og 2009
Efling atvinnuþróunar og nýsköpunar
Ríkisstjórnin hefur ákveðið að veita alls 100 milljónum króna árið 2008 til eflingar atvinnuþróunar og nýsköpunar á þeim svæðum sem verða fyrir aflasamdrætti vegna skerðingar þorskaflaheimilda. Styrkhæf svæði eru sveitarfélög og eyjar þar sem hlutfall starfa í veiðum og vinnslu er 10% eða hærra. Áformað er að í fjárlögum ársins 2009 verði 100 milljónir sem verður ráðstafað á sama hátt.
Auglýst er eftir umsóknum um stuðning við verkefni á viðkomandi svæðum. Umsækjendur geta verið sveitarfélög, fyrirtæki og einstaklingar. Hámarksstyrkur er 8 milljónir króna, þó aldrei hærri en 50% af viðurkenndum heildarkostnaði verkefnisins. Hámarks hlutafé er 8 milljónir króna, þó að hámarki 50% af heildarhlutafé.
Styrkir verða veittir til:
- Stofnkostnaðar annars en kaupa/byggingar húsnæðis, véla og tækja.
- Þróunarkostnaðar á vöru og/eða þjónustu
- Markaðssetningar á vöru og/eða þjónustu.
Við afgreiðslu umsókna verður sérstaklega litið til langtímaáhrifa verkefna, sköpunar nýrra starfa á svæðunum og hversu hratt störfin geta orðið til. Ekki er um að ræða styrki/hlutafé til menntunar- og rannsóknarverkefna.
Umsóknum skal á sérstökum umsóknareyðublöðum, sem hægt er að nálgast á heimasíðu Byggðastofnunar (www.byggdastofnun.is) og Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum (www.sss.is).
Tenglar á heimasíður atvinnuþróunarfélaganna eru á heimasíðu Byggðastofnunar undir ,,innlent samstarf.
Umsóknum skal skilað til atvinnuþróunarfélags Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum , Iðavöllum 12b, 230 Reykjanesbæ fyrir 19. febrúar 2008.
Tengiliður fyrir umsóknirnar á Suðurnesjum er Berglind Kristinsdóttir, berglind@sss.is. S: 420-3290.
Eftirfarandi eru skrár á Word sniði:
Markmið og mat á umsóknum
Umsóknareyðublað