Ályktun 18/12 ´07

19.12.2007

 

Á fundi stjórnar Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum þann 18. desember 2007 var eftirfarandi samþykkt: 

 

        “Stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum vill í ljósi umræðna um uppbyggingu á fyrrum varnarsvæði, leggja áherslu á eftirfarandi:

 

         Náðst hefur á stuttum tíma og með afar góðum árangri að breyta fyrrum varnarstöð í lifandi þjónustu-og vísindasamfélag.  Umbreytingin hefur nú þegar haft jákvæð samfélagsleg áhrif á sveitarfélögin á Suðurnesjum og í henni felast tækifæri til enn fleiri verkefna og fjölbreyttrar atvinnuuppbyggingar.  Allt frá upphafi þessa starfs var áhersla lögð á að tekið yrði tillit til uppbyggingarmarkmiða sveitarfélaga á Suðrnesjum og stöðu þeirra ekki ógnað.  Stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum lýsir áhyggjum sínum yfir þeirri neikvæðu umræðu sem fram hefur farið að undanförnu um uppbyggingu svæðisins.  Stjórnin telur mikilvægt að vallarsvæðið verði uppspretta nýrra hugmynda og atvinnutækifæra og fái að njóta jákvæðrar kynningar og hvatningar í samfélaginu.”

Til baka