Átak til atvinnusköpunar:
Ert þú með snjalla nýsköpunarhugmynd?
Iðnaðarráðuneyti auglýsir eftir umsóknum um styrki úr verkefninu Átak til atvinnisköpunar.
Átak til atvinnusköpunar veita styrki til smærri verkefna og verkefna sem leitt geta til nýsköpunar.
Umsóknir og fylgigögn
Allar umsóknir skulu færðar á þar til gerð umsóknaeyðublöð sem er á vefsíðu Impru, www.impra.is. Þar skal eftirfarandi koma fram:
* Markmið verkefnisins.
* Lýsing á verkefninu, greining á nýnæmi þess og áætlaður árangur (afurð)
* Styrkir og önnur fyrirgreiðsla sem áður hefur verið veitt til verkefnisins
* Kostnaðaráætlun og tímaáætlun fyrir verkefnin
* Áætlanir um sölu og markaðssetningu
Styrkir geta að hámarki numið 50% af heildarkostnaði verkefnisins. Ekki eru veittir styrkir til fjárfestinga.
Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð á vefsíðu Impru, www.impra.is og hjá Hallfríði Benediktsdóttur í tölvupóstfang hb@nmi.is. Umsóknarfrestur er til 3. nóvember 2007.
Umsóknum skal skilað á framangreindum eyðublöðum til:
Impra - frumkvöðlar og sprotar,
Nýsköpunarmiðstöð Íslands,
Keldnaholti, 112 Reykjavík
merkt Átak til atvinnusköpunar eða á netfangið atak@nmi.is