Styrkir til atvinnumála kvenna

16.2.2007

Vinnumálastofnun/Félagsmálaráðherra auglýsir eftir umsóknum um Styrki til atvinnumála kvenna. Umsóknareyðublaðið er rafrænt og er hægt að nálgast það hér að neðan. Athugið að ekki þarf að ljúka umsókn í einni atrennu heldur er hægt að vista hana og koma að henni aftur síðar. Umsóknarfrestur er til 11. mars 2007.

Hægt er að nálgast umsóknareyðblað á heimasíðu Vinnumálastofnunar

Frekari upplýsingar veitir Líney Árnadóttir í síma 455 4200 og á netfanginu: liney.arnadottir@svm.is. Vinsamlega kynnið ykkur reglur við úthlutun hér á síðunni.

Vinnureglur og upplýsingar við úthlutun árið 2007

Heildar fjárhæð til úthlutunar er 25.000.000.

Við styrkúthlutun verður eftirfarandi haft að leiðarljósi:

  • Styrkhæf verkefni skulu vera í eigu kvenna (a.m.k. 50%) og stjórnað af konum.
  • Verkefnið feli í sér atvinnusköpun til frambúðar.
  • Um nýnæmi sé að ræða.
  • Viðskiptahugmynd sé vel útfærð, markmið séu skýr og leiðirnar að þeim.
  • Verkáætlun sé raunhæf.
  • Kostnaðar og tekjuáætlun sé vönduð, skýr og trúverðug.
  • Að verkefnið sé arðbært.
  • Verkefnið skekki ekki samkeppnisstöðu á vinnumarkaði.
  • Hámarksstyrkur er 1.500.000 kr.
  • Framlag ríkisins til þeirra sem styrk hljóta nemur 50% af framlögðum styrkhæfum kostnaði.
  • Veittir eru styrkir til undirbúnings viðskiptahugmyndar, áætlunargerðar, stofnunar fyrirtækis, þróunar og markaðssetningar.
  • Ekki eru veittir rekstrarstyrkir

Umsækjendum er eindregið ráðlagt að leita rágjafar við gerð umsóknar.

Hjá Impru nýsköpunarmiðstöð er boðið upp á upplýsingar og handleiðslu fyrir frumkvöðla og lítil fyrirtæki. Á heimsíðu Impru er einnig hægt að nálgast ýmiskonar fræðsluefni um stofnun og rekstur fyrirtækja. Sjá www.impra.is. Sími Impru er 570 7100.


Atvinnuráðgjafar atvinnuþróunarfélaga
veita ráðgjöf og upplýsingar við gerð umsókna.  Atvinnuráðgjafi Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum er Berglind Kristinsdóttir, netfang hennar er berglind@sss.is

Umsóknarferli

  • Umsóknir eru sendar inn rafrænt af heimasíðu Vinnumálastofnunar fyrir 11. mars 2007.
  • Sérstök ráðgjafanefnd á vegum félagsmálaráðherra metur umsóknir og leggur tillögur sínar fyrir félagsmálaráðherra.
  • Sé umsókn ófullnægjandi eða umbeðnum gögnum ekki skilað fyrir auglýstan umsóknarfrest áskilur ráðgjafahópurinn sér rétt til að hafna umsókn á þeim forsendum.
  • Stefnt er að því að ákvarðanir um styrkveitingar liggi fyrir í lok maí 2007.
  • Öllum umsóknum verður svarað skriflega.

Um styrki til atvinnumála kvenna

Frá árinu 1991 hefur sérstöku fjármagni verið veitt til eflingar atvinnumála kvenna og hefur félagsmálaráðuneyti annast þessar styrkveitingar. Frá árinu 1997 hefur Vinnumálastofnun annast umsýslu með verkefninu.

Tilgangur styrkveitinganna er einkum að:

  • Auka fjölbreytni í atvinnulífi.
  • Viðhalda byggð um landið og stuðla að fjölbreytni í atvinnulífi á landsbyggðinni.
  • Auðvelda aðgang kvenna að fjármagni.
  • Draga úr atvinnuleysi meðal kvenna.

Sérstakur ráðgjafahópur fer yfir umsóknir og leggur tillögur sínar fyrir félagsmálaráðherra.


Sjá námar á heimasíðu Vinnumálastofnunar.

Til baka