Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hefur tekið ákvörðun um nýtt byggðakort fyrir Ísland sem gildir til ársloka 2013. Íslenskum stjórnvöldum er heimilt að veita byggðastyrki á þeim svæðum sem falla undir byggðakortið. Ríkisstyrkir til atvinnurekstar eru óheimilir en heimilt er að veita byggðastyrki að uppfylltum skilyrðum.
Íslensk stjórnvöld mega samkv. ákvörðun ESA veita byggðastyrki á tímabilinu 1. janúar 2007 til 31. desember 2007 í öllum sveitarfélögum landsins nema Reykjavík, Kópavogsbæ, Seltjarnarneskaupstað, Garðabær, Hafnarfjarðarkaupstað, Álftanes, Mosfellsbæ, Reykjanesbæ, Grindavíkurbæ, Sandgerðisbæ, Garði, Vogum og Kjósarhreppi.
Ný flokkun hefur verið staðfest af Hagstofu Evrópusamband (EUROSTAT). Hún tekur gildi frá 1. janúar 2008 til 31. desember 2013 og miðast við núverandi kjördæmaskipan. Skv. því mega íslensk stjórnvöld veita byggðastyrki í öllum þeim sveitarfélögum sem falla undir landsbyggðakjördæmin þrjú þ.e. Norðvesturkjördæmi, Norðausturkjördæmi og Suðurkjördæmi. Við þessar breytingar stækkar byggðakortið sem nemur Reykjanesbæ, Grindavíkurbæ, Sandgerðisbæ, Garði og Vogum.
Hér er hægt að sjá nýtt byggðakort
slóð á byggðarkort.