Stoðkerfi atvinnulífsins
Hérna er listi yfir fjölda styrkja sem eru í boði ásamt helstu upplýsingum. Listinn er ekki tæmandi og allar ábendingar vel þegnar. Atvinnuráðgjafi mun auk þess reyna að birta á heimasíðu Sambandsins upplýsingar um þá styrki sem eru auglýstir til umsóknar.
Átak til atvinnusköpunar. Iðnaðarráðuneytið veitir styrkinn. Nýsköpunarverkefni á frumstigi falla undir umsóknirnar. Möguleg styrkupphæð er 50% af heildarkostnaði verkefnisins. Styrkurinn er ekki veittur til fjárfestinga. Umsóknir eru aulýstar á vori og hausti. Umsjónaraðili styrks er Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Hægt er að fá nánari upplýsingar á heimasíðu Nýsköpunarmiðstöð Íslands.
Frumkvöðlastuðningur. Nýsköpunarsjóður veitir styrkinn. Viðskiptahugmyndir með nýsköpunargildi falla undir umsóknir. Möguleg styrkupphæð er allt að 600.000,- kr. Sérstakir skilmálar eru þeir að frumkvöðull leggi fram jafn háa upphæð og styrkurinn. Styrkurinn er veittur fjórum sinnun á ári. Umsjónaraðili er Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Hægt er að fá nánari upplýsingar á heimasíðu Nýsköpunarmiðstöð Íslands
Skrefi framar. Impra veitir styrkinn. Niðurgreiðsla á ráðgjafakostnaði lítill fyrirtækja falla undir umsóknir. Möguleg styrk upphæð er allt að 600.000,- kr. Sérstakir skilmálar eru að umsóknaraðili þarf að leggja fram jafn hátt framlag. Umsóknir eru auglýstar á vori og hausti. Umsjónaraðili styrks er Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Hægt er að fá nánari upplýsingar á heimasíðu Nýsköpunarmiðstöð Íslands.
Klasar. Nýsköpunarmiðstöð Íslands veitir styrkinn. Klasa er stuðningsverkefni fyrir fyrirtæki á landsbyggðinni. Impra styður fjárhagslega, faglega við myndun og eflingu klasasamstarfs. Styrkupphæð er allt að 3.000.000,- kr. Verkefnið er opið fyrirtækjum sem vilja hefðja samstarf og starfandi klösum á landsbyggðinni í öllum starfsgreinum. Við myndun klasa verða a.m.k 5 fyrirtæki að koma að undirbúningsvinnu og stofnun klasa. Hægt er að frekari upplýsingar og umsóknir á heimasíðu Nýsköpunarmiðstöð Íslands.
Starfsorka er átaksverkefni Vinnumálastofnunar og Impru á Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Markmiðið er að auðvelda fyrirtækjum að ráða fólk í atvinnuleit. Þátttaka er öllum fyrirtækjum og einstaklingum með rekstur á landinu opinn. Umsóknir eru afgreiddar vikulega. Nánari upplýsingar er að finna hér.
Styrkir AVS rannsóknasjóðs í sjávarútvegi eru veittir til rannsóknaverkefna. Markmið styrksins er að stuðla að auknu verðmæti sjávarfangs. Veittir eru styrkir til vernfa sem taka á öllum þáttum sjávarútvegs og fiskeldis. Styrkirnir eru ætlaðir einstaklingum, fyrirtækjum, rannsókna-, þróunar- og háskólastofnunum. Hægt er að finna nánari upplýsingar á heimasíðu AVS.
Pokasjóður. Styrkurinn er veittur af Pokasjóði verslunarinnar. Undir verkefnið falla umsóknir sem heyra undir almannheill, s.s. íþróttir, menning, umhverfismál, listir eða mannúðarmál. Umsóknir þurfa að berast fyrir febrúar. Ekki eru skilgreindir sérstakir skilmálar. Umsjónaraðili er Pokasjóður. Hægt er að finna nánari upplýsingar á heimasíðu Pokasjóðs.
Nýsköpunarsjóður Íslands er fyrst og fremst fjárfestingaraðili í formi hlutafjá eða lána en standa þó í nokkrum styrktarverkefnum m.a. í samstarfi við IMPRU. Nánari upplýsingar um sjóðinn er að finna á heimasíðu hans Nýsköpunarsjóður Íslands.
Rannís er með ýmsa sjóði þar sem hægt er að sækja um styrki. Eru það sjóðir eins og rannsóknarsjóður, tæknisjóður, tækjasjóður, rannsókarnámssjóður, nýsköpunarsjóður námsmanna og fl. Áhugasamir eru hvattir til að kynna sér frekari upplýsingar á heimasíðu Rannís.
Atvinnumál kvenna. Árið 1991 kom þáverandi félagsmálaráðherra Jóhanna Sigurðardóttir af stað verkefni sem hafði það að markmiði að veita styrki í góðar viðskiptahugmyndir kvenna. Á síðasta ári var ákveðið að ráð starfsmann til að sinna verkefninu. Hún sinnir auk þess ráðgjafastarfi og eftirfylgni við styrkþega. Starfsmaðurinn heitir Ásdís Guðmundsdóttir og er hún með starfsstöð á Sauðárkróki. Sjóðurinn hefur 50 milljónir til ráðstöfunar. Hægt er að fá frekari upplýsingar á heimasíðunni Atvinnumál kvenna.
Lánasjóður Vestur-Norðurlanda veitir lán og styrki til framfara verkefna hjá litlum og meðalstórum fyrirtækjum. Sérstök áhersla er lögð á þróun framleiðslu til útflutnings, bætta þjónustu og nýsköpun. Hlutverk sjóðsins er að efla fjölbreytt og samkeppnisfært atvinnulíf í Færeyjum, Grænlandi og Íslandi. Heimasíða sjóðsins er Vestnorden.is.