Býrð þú að viðskiptahugmynd eða hugar þú að breytingum í rekstri?
Hafðu þá samband við atvinnuráðgjafa Atvinnuþróunarfélags Suðurnesja, Heklunnar.Við upplýsum og leiðbeinum þér við að ná þínum markmiðum. Fyrirtækjarekstur er fjölþættur, þar af leiðandi getur viðtal hjá atvinnuráðgjafa haft veruleg áhrif á framgang mála.
Hafðu samband þegar þér hentar með tölvupósti á netfangið til að panta tíma eða fá upplýsingar á netföngin bjork@heklan.is, dagny@heklan.is, marialoa@heklan.is. Einnig er hægt að hringja í síma 420 3288 á skrifstofutíma frá 9 -16.
Frekari upplýsingar má finna á heimasíðu Heklunnar, heklan.is